Strokufangi handsamaður á ný

AFP

Sex dögum eftir að fanga var sleppt fyrir mistök í Baltimore í Bandaríkjunum, er meinti morðinginn aftur kominn á bak við lás og slá. 

Samkvæmt lögreglu fannst hinn þrítugi Rodriguez Purnell á fimmtudag, aðeins nokkrum götum frá staðnum þar sem hann er talinn hafa myrt mann á seinasta ári. 

Purnell hafði verið ákærður fyrir að myrða hinn 27 ára gamla Terr­ance Rheu­bottom í mars á seinasta ári, og var honum haldið í fangelsinu á meðan hann beið réttarhalda í málinu. 

Ekki komst upp um það að Purnell hefði sloppið fyrr en tveimur dögum eftir að hann var farinn úr fangelsinu. Lögregla rannsakar nú hver hafi mögulega hleypt manninum úr fangelsinu.

Sleppt úr fangelsi fyrir mistök

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert