Mölfluga fjarlægð úr eyra manns

Mölfluga
Mölfluga Af vef Wikipedia

Birt hefur verið myndband af því þegar mölfluga, skordýr sem er náskylt fiðrildi, og blóðmaur voru fjarlægð úr eyra bandarísks manns að nafni Mikey. Daily Mail greinir frá þessu.

Í myndbandinu sést maðurinn liggja á gólfi í miklum sársauka á meðan vinir hans reyna að ná skordýrunum úr eyra hans með plokkara.

Í fyrstu virðist sem aðeins mölflugan sé búin að taka sér bólfestu í eyra mannsins, en þegar betur er að gáð kemur blóðmaurinn einnig í ljós.

Loks ná vinirnir að fjarlægja bæði skordýrin úr eyra mannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert