Lögreglumaður skotinn af lögreglu?

AFP

Karlmaður hóf skothríð á nokkrar byggingar í borginni Austin í Texas í dag og var í kjölfarið skotinn til bana af lögreglu. Haft er eftir sjónarvotti í frétt AFP að maðurinn hafi verið klæddur eins og óeirðalögregla og með allan útbúnað í samræmi við það. Þá hafi hann verið vopnaður stórri byssu.

Ennfremur kemur fram í fréttinni að maðurinn hafi skotið á byggingu gegnt höfuðstöðvum lögreglunnar í borginni. Þá er haft eftir sjónarvottum að lögreglan hafi komið fljótt á staðinn. Fjórir eða fimm lögreglubílar hafi mætt. Til skotbardaga kom við manninn sem lauk sem fyrr segir með því að hann var felldur af lögreglunni.

Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til. Þá hefur ekki verið gefið upp hver hann var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert