Sprenging í úthverfi Stokkhólms

www.norden.org

Hávær sprenging vakti íbúa í Rinkeby, úthverfi Stokkhólms, af værum blundi í nótt en talið er að það hafi verið kveikt í líkamsræktarstöð í lítilli verslunarmiðstöð.  Miklar skemmdir eru á húsnæðinu og verða allar verslanir þar lokaðar í dag.

Í frétt Dagens Næringsliv kemur fram að sprengingin hafi verið gríðarleg og skemmdirnar mjög miklar. Lögreglan í Stokkhólmi rannsakar málið sem íkveikju en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert