Lýsa morðinu sem aftöku

Wenjian Liu hafði starfað í lögreglunni í New York í …
Wenjian Liu hafði starfað í lögreglunni í New York í nokkur ár. NYPD

Wenjian Liu, annar lögreglumannanna sem voru myrtir í New York í gær, hafði gift sig fyrir tveimur mánuðum. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur fordæmt ódæðisverkið.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum lýsa morðinu á Wenjian Liu og Rafael Ramos sem aftöku. Þeir sátu í lögreglubíl í Brooklyn-hverfinu þegar maður kom gangandi og skaut á lögreglubílinn.

Morðinginn heitir Ismaaiyl Brinsley. Hann var 28 ára gamall. Stuttu áður en hann skaut á lögreglumennina hafði hann skotið á fyrrverandi unnustu sína. Hún er alvarlega slösuð.

Brinsley hafði skrifað á Instagram að hann langaði til að drepa lögreglumann.

Byssan sem morðinginn notaði við morðin.
Byssan sem morðinginn notaði við morðin. NYPD
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert