Sex létust er rúta féll ofan í gljúfur

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Wikipedia

Sex manns létu lífið og 20 slösuðust hið minnsta þegar rúta féll ofan í gljúfur í héraðinu Chiriqui í Panama í dag. Slysið átti sér stað skömmu eftir að rútan lagði af stað frá bænum David á leið til bæjarins Puerto Armuelles.

Fram kemur í frétt AFP að samhæfingarstöð björgunarmála í Panama hafi sett inn upplýsingar um slysið á samskiptavefinn Twitter og mynd af rútunni á hvolfi ofan í gljúfrinu umkringdri af björgunarsveitarmönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert