Á sjötta tug látnir eftir árás á mosku

Að minnsta kosti 56 eru látnir og tugir særðir eftir að sprengjuárás var gerð á mosku sjíta-múslíma í pakistönsku borginni Shikarpur í dag. Þetta er mesta mannfall í árás á sjíta-múslíma í landinu í tvö ár.

Fjölmargir voru inni í moskunni og stóðu föstudagsbænir yfir þegar sprengjan sprakk. Uppreisnarhópurinn Jundullah, sem samanstendur af súnní-múslímum, hefur þegar lýst ódæðinu á hendur sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert