Fyrsta ebólusmitið í rúman mánuð

Heilbrigðisstarfsmenn í Sierra Leone skoða fólk á leið yfir landamærin …
Heilbrigðisstarfsmenn í Sierra Leone skoða fólk á leið yfir landamærin til Líberíu. AFP

Líberísk kona, sem sýkt var af ebólu lést í gær. Var konan greind með ebólu í síðustu viku og var hún fyrst til að vera greind með veiruna í Líberíu í rúman mánuð.

Var konan greind með ebólu 20. mars síðastliðinn, en hún var gift manni sem hafði sýkst af veirunni en læknast. Grunur leikur á að tveir aðrir hafi sýkst af veirunni í Líberíu síðustu daga.

Vonir höfðu vaknað um að ebólufaraldrinum í landinu væri að ljúka en með fregnum af andláti konunnar má gera ráð fyrir því að svo sé ekki. 

Samkvæmt upplýsingum frá Francis Karteh, yfirmanni ebólu-teymis yfirvalda í Líberíu er nú fylgst náið með 80 einstaklingum sem gætu hafa átti í samskiptum við konuna sem lést í gær. 

Rúmlega 4300 hafa látist úr ebólu í Líberíu síðan að faraldurinn hófst. Áður en konan sýkist stóð til að lýsa því yfir að landið væri laust við veiruna um miðjan apríl.

Síðan að faraldurinn hófst í desember 2013 hafa meira en 24,000 manns í níu löndum sýkst af veirunni. Rúmlega 10,000 þeirra hafa látið lífið. Langflestir þeirra létust í Líberíu, Sierra Leone og Gíneu. 

Fyrir um sex mánuðum síðan var að meðaltali tilkynnt um 300 ný smit á viku í Líberíu. 

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert