Grunaðir um að hafa nauðgað nunnu

AFP

Fjórir menn hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa nauðgað eldri nunnu  í Indlandi í síðasta mánuði. Eru mennirnir frá Bangladess.

Kon­an þurfti á skurðaðgerð að halda eft­ir árás­ina en hóp­ur ræn­ingja braust inn í nunnuklaust­ur þar sem hún starfaði. Mynd­ir af mönn­un­um náðust á ör­ygg­is­mynda­vél og hafði lög­reglu upp á fjór­um þeirra. Hafa þeir nú verið handteknir. 

Dilip Kumar Adak, sem stjórnar rannsókn málsins, segir tveir aðrir séu í varðhaldi vegna málsins. Þeir voru handteknir í síðustu viku. Hefur lögregla borið kennsl á alla þá sem réðust inn í klaustrið, en einn þeirra hafði verið ráðinn af nunnunum til þess að sinna viðhaldi í klaustrinu. 

Fyrri fréttir mbl.is:

Grunaður um að hafa nauðgað nunnunni

Aldraðri nunnu nauðgað af hópi manna

Var árásinni mótmælt í Indlandi.
Var árásinni mótmælt í Indlandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert