Kelly Mae Myers, 18 ára stúlka frá Colorado í Bandaríkjunum, lést eftir að hún innbyrti of mikið af fíkniefnum. Líkamsleifar stúlkunnar fundust í ferðatösku í lok febrúar á þessu ári. Lögregla telur að hún hafi látið lífið á hótel í Utah og að lík hennar hafi verið flutt þaðan í ferðatösku og skilið eftir.
Tveir karlmenn, 30 ára og 47 ára, eru grunaðir um að hafa átt þátt í andláti stúlkunnar. Talið er hugsanlegt að hún hafi ætlað að ferðast á puttanum til vina sinna í Salt Lake City.
Starfsfólk hótelsins sagði við lögreglu að vond lykt hefði verið í herberginu þar sem hún dvaldi og er takið að stúlkan hafi látið lífið í herberginu.
Frétt mbl.is: Fundu lík stúlkunnar í ferðatösku.