Bandaríska parið Tommy Schaefer og Heather Mack, 21 árs og 19 ára, hafa verið fundin sek um að hafa myrt móður Mack og troðið líki hennar í ferðatösku í Indónesíu. Schaefer var dæmdur til 18 ára fangelsisvistar en Mack hlaut 10 ára dóm.
Lík konunnar, sem var 62 ára, fannst í ferðtösku fyrir utan lúxushótel á eyjunni Balí. Dómarinn í málinu sagði gjörðir Schaefer lýsta kvalalosta en tók jafnframt fram að hann hefði sýnt iðrun við réttarhöldin og það hefði komið í veg fyrir að hann fengi enn þyngri refsingu.
Mack fæddi barn þeirra Schaefer í síðasta mánuði. Hún hlaut dóminn fyrir að aðstoða kærasta sinn við morðið. Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu yfir unga manninum en 15 ára fangelsi yfir Mack.
Fer í fangelsið á ný eftir barnsburð