Hannah Wilson var barin til dauða

Hannah Wilson var aðeins 22 ára gömul.
Hannah Wilson var aðeins 22 ára gömul. Skjáskot af SkyNews

Hin 22 ára Hannah Wilson sem fannst látin í gær í Indiana-ríki í Bandaríkjunum var barin til dauða.

Talið er að hún hafi verið slegin í höfuðið þrisvar til fjórum sinnum með barefli sem fannst ekki á vettvangi. Lík ungu konunnar var fullklætt og bendir ekkert til þess að henni hafi verið nauðgað. 

Tæplega fimmtugur maður var handtekinn í gær, grunaður um morðið. Ekki er vitað hvort Wilson þekkti manninn eða af hverju hann vildi vinna henni mein.

Lík Wilson fannst 32 kílómetrum frá háskólanum í Indiana þar sem hún var við nám sama dag og tilkynnt var um hvarf hennar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert