„Fullkomlega falleg“

Harry prins segir að frænka sín sé „fullkomlega falleg“. Þetta er í fyrsta sinn sem Harry tjáir sig um fæðingu prinsessunnar, dóttur Vilhjálms og Katrínar, en hann er staddur við skyldustörf fyrir herinn í Ástralíu. Harry segist ekki geta beðið eftir að hitta þá stuttu.

Enn er beðið eftir því að hjónin nefni stúlkuna og nú er ljóst að það verður ekki tilkynnt í dag, samkvæmt upplýsingum frá Kensington-höll.

Afar og ömmur litlu prinsessunnar komu til hallarinnar í dag til að hitta stúlkuna í fyrsta sinn.

Litla prinsessan.
Litla prinsessan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert