David Goldberg, eiginmaður Sheryl Sandberg, aðalframkvæmdastjóra Facebook, lést eftir að hafa slasast alvarlega í líkamsræktarstöð í Mexíkó en þar var hann í fríi. Lögregla staðfesti þetta í dag.
Goldberg var 47 ára gamall og framkvæmdarstjóri SurveyMonkey. Samkvæmt frétt NBC fannst hann á gólfinu við hliðina á hlaupabretti á Four Seasons hótelinu nálægt Puerto Vallarta.
Bróðir hans, Robert, fann hann í líkamsræktarstöðinni eftir að honum fannst bróðir sinn hafa verið lengi í burtu. Að sögn lögregluyfirvalda í Mexíkó féll Goldberg og rak höfuðið í hlaupabrettið. Hann var með skurð á höfði þegar hann fannst.
Goldberg var lifandi þegar hann fannst en lést á sjúkrahúsi. Dánarorsakir hans voru höfuðáverkar og mikill blóðmissir.
Goldberg og Sandberg gengu í hjónaband árið 2004.
Fyrri frétt mbl.is:
Eiginmaður Sheryl Sandberg bráðkvaddur