Þjóðaratkvæðagreiðsla um hjónabönd samkynhneigðra fer fram í Írlandi í dag. Ef niðurstaðan verður jákvæð verður það í fyrsta skipti í heiminum sem kjósendur staðfesta lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra með þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Þessi byrði sem hefur verið á samkynhneigðum pörum um að lifa í felum getur verið fjarlægð í dag ef við kjósum 'Já',“ sagði Enda Kenny, forsætisráðherra landsins áður en atkvæðagreiðslan hófst. „Fólk í Írlandi getur gert það að verkum að allir í samfélaginu verða jafnir til að gifta sig.“
Samkynhneigð var enn ólögleg í Írlandi fyrir 22 árum síðan, en frá árinu 2010 hafa yfir tvö þúsund samkynhneigð pör skráð sig í sambúð. Írland er eini staðurinn á Bretlandseyjum þar sem hjónabönd samkynhneigðra eru enn ólögleg. Ef niðurstaðan verður jákvæð verður það í fyrsta skipti sem hjónabönd yrðu endurskilgreind í írskri stjórnarskrá.
Írland yrði nítjánda landið í heiminum til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra og það fjórtánda í Evrópu. Þjóðaratkvæðagreiðslur í Króatíu og Slóveníu staðfestu báðar að hjónabönd samkynhneigðra skyldu vera ólögleg, en þingið í Slóveníu sneri því þó við í mars sl.
Helstu stjórnmálaflokkar landsins eru sameinaðir í afstöðu sinni og hvetja fólk til að kjósa „Já“ sem ber merki um mikla þjóðfélagsbreytingu í landinu. Kaþólska kirkjan hefur þó barist hart gegn því að hjónabönd verði endurskilgreind.
„Ég held að margir trúi því enn að hjónaband sé á milli karls og konu sem geta átt börn og kannski munum við eiga í erfiðleikum því við munum þá nota hugtakið hjónaband yfir eitthvað sem við trúum að það sé ekki,“ sagði Eamon Martin, erkibiskup og yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í Írlandi.
Stærstur hluti írsku þjóðarinnar skilgreinir sig sem kaþólskan, en ítök kirkjunnar hafa þó veikst mikið í kjölfar þess að mál tengd kynferðisafbrotum gegn börnum innan kirkjunnar hafa komið upp á yfirborðið. Sérstaklega eftir að yfirmenn kirkjunnar reyndu að hylma yfir sum brot.
Ef samþykkt verður að leyfa hjónabönd samkynhneigðra verður sett ákvæði í stjórnarskrá Írlands þess efnis að hjónaband væri samkvæmt lögum á milli tveggja einstaklinga án tillits til kyns þeirra.
Skoðanakannanir benda til þess að stjórnarskrárbreytingin verði samþykkt en áður hafði staðfest sambúð samkynhneigðra verið samþykkt árið 2010. Hins vegar hafa kannanir einnig bent til þess að margir sem segjast hlynntir breytingunni hafi fyrirvara á þeirri afstöðu sinni. Fyrir vikið gæti því orðið mjótt á mununum.
Fjölmargir frægir Írar hafa lýst yfir stuðningi sínum, þar á meðal leikarinn Colin Farrell og söngvarinn Bono. Kjörstaðir loka klukkan 10 í kvöld, en búist er við niðurstöðu kosninganna annað kvöld.