Barin og brennd fyrir að vera norn

Frá mótmælum í Guatemala.
Frá mótmælum í Guatemala. AFP

47 ára gömul kona var í dag barin til dauða af æstum múg í San Luis í Guatemala. Múgurinn sakaði konuna um að vera norn og kveikti í líki hennar. Konan hét Catarina Gonzalez Perez.

Atburðir sem þessir eru algengir í þorpum Guatemala meðal íbúa sem segjast ekki treysta yfirvöldum til þess að framfylgja réttlætinu. Aðeins eru þrír dagar síðan 16 ára stúlka var barin til óbóta og síðan brennd af múg sem sagði hana hafa myrt leigubílstjóra.

Árið 2013 voru 52 einstaklingar myrtir af slíkum hópum en 23 voru myrtir við svipaðar aðstæður árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert