Varð undir legsteini og dó

AFP

Átta ára drengur lést á sjúkrahúsi í Glasgow í Skotlandi eftir að hafa orðið undir legsteini í kirkjugarði.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að tveir aðrir drengir hafi einnig verið fluttir úr kirkjugarðinum á sjúkrahúsið. Þeir eru báðir tíu ára. Annar þeirra hefur verið útskrifaður en ástand hins er sagt stöðugt.

Lögreglan rannsakar nú hvað gerðist í kirkjugarðinum en hefur þegar gefið út að hún telji ekki neitt saknæmt hafa átt sér stað.

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert