Koma Púertó Ríkó ekki til bjargar

Bandaríska alríkisstjórnin hefur ekki í hyggju að koma Púertó Ríkó til bjargar fjárhagslega, en fjárhagsstaða Púertó Ríkó er mjög slæmt. Alríkisstjórnin mun hins vegar vinna með leiðtogum Púertó Ríkó, sem er sérstakt sambandssvæði innan Bandaríkjanna.

Alríkisstjórnin mun gera hvað hægt er, án þess þó að beina beinhörðum peningum til Púertó Ríkó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert