Steyptist fram af bjargi með 1.300 kíló af grasi

Kannabisplöntur. Mynd úr safni.
Kannabisplöntur. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tveir fíkniefnasmyglarar í Brasilíu áttu slæman dag á laugardaginn þegar vörubíll þeirra og fylgdarbíll köstuðust fram af bjargi. Innanborðs voru 1.300 kíló af kannabisefnum.

Bílstjóri vörubílsins flúði af vettvangi slyssins, sem varð að því er virðist vegna hraðaksturs.

Þegar lögregla kom á staðinn handtók hún ökumann bílsins sem fylgdi vörubílnum. Ökumaðurinn var ekki alvarlega slasaður, en lögreglu tókst ekki að ná upp úr honum orði varðandi tildrög slyssins, því hann segist ekki muna nokkurn skapaðan hlut um atvikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert