Tilræðismaður hengdur

Indversk yfirvöld tóku Yakub Memon, manninn sem var dæmdur fyrir að hafa fjármagnað sprengjutilræði í Mumbai árið 1993, af lífi í dag. Memon var hengdur í fangelsi í Nagpur í Maharashtra-héraði. 

Alls létust 257 í sprengjutilræðinu sem var hefnd fyrir dráp á múslímum í uppþotum í borginni nokkrum mánuðum fyrr, segir í frétt BBC. 

Aftökur eru fátíðar á Indlandi en aðeins hafa þrír verið teknir af lífi þar síðan árið 2004.

Mikill viðbúnaður var við Nagpur fangelsið í morgun og í hluta borgarinnar Mumbai vegna aftökunnar. 

Tilræðið  í Mumbai í mars 1993 beindist að nokkrum skotmörkum en alls sprungu sprengjur á tólf stöðum í borginni, meðal annars í kauphöllinni, skrifstofum Air India og á lúxushóteli.

Bróðir Yakub Memons, Tiger, er talinn hafa verið höfuðpaurinn á bak við árásirnar ásamt höfuðpaur glæpagengis, Dawood Ibrahim. Þeir fara báðir huldu höfði.

(
( AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert