Lést eftir högg með hafnarboltakylfu

Kaiser Carlile lést í gærkvöldi.
Kaiser Carlile lést í gærkvöldi. Skjáskot/BBC

Níu ára drengur lét lífið eftir að hafa hlotið högg í höfuðið í hafnarboltaleik í Kansas í Bandaríkjunum. Kaiser Carlile var kylfusveinn í leik The Bee Jays og San Diego Waves og var að sækja kylfu sem lá á jörðinni þegar hann var óvart sleginn í höfuðið með hræðilegum afleiðingum.

Hafnarboltaleikmaður tók ekki eftir Carlile og sló hann óvart með hafnarboltakylfu en Carlile var með hjálm. Leikurinn fór fram á laugardagskvöld en pilturinn lést í gærkvöldi.

Frétt BBC um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert