Köstuðu bensínsprengjum að þinghúsinu

Einn lögreglumaður lést og hundrað særðust þegar að uppreisnarmenn köstuðu bensínsprengjum og handsprengjum að þinghúsi Úkraínu í Kænugarði.

Hópur fólks safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í dag til þess að mótmæla atkvæðakosningu á þinginu um áframhaldandi sjálfstjórnarsvæði uppreisnarmanna í borgunum Donetsk og Luhansk.

Tíu lögreglumenn særðust alvarlega í árásinni en þeir voru við störf við bygginguna.

Að sögn yfirvalda notaði fólkið bæði handsprengjur og bensínsprengjur við þinghúsið í dag.. Lögregla svaraði með því að nota táragas á hópinn.

Að sögn úkraínskra fjölmiðla blönduðust fimmtíu meðlimir þjóðvarnarliðsins og blaðamenn á staðnum inn í átökin. Að sögn AFP fréttastofunnar mátt jafnframt sjá blóðugt fólk liggja í jörðinni fyrir utan þinghúsið.

Talið er að flestir mótmælendanna séu meðlimir í úkraínska þjóðernisflokknum Svoboda en hann á nokkur sæti á þingi. Fólkið var að mótmæla ákvörðun þingsins um að veita sjálfsstjórnarsvæðunum aukin völd en Svoboda lítur svo á að ákvörðunin ógni fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. 

Við þinghúsið í dag.
Við þinghúsið í dag. AFP
AFP
Mótmælendur köstuðu bensínsprengjum og handsprengjum að húsinu.
Mótmælendur köstuðu bensínsprengjum og handsprengjum að húsinu. AFP
Talið er að flestir mótmælendanna séu meðlimir í úkraínska þjóðernisflokknum …
Talið er að flestir mótmælendanna séu meðlimir í úkraínska þjóðernisflokknum Svoboda flokknum. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert