Átta látnir í bruna í París

Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP

Átta, þar af tvö börn, létust í stórbruna í París í nótt. Allt fólkið lést þegar það reyndi að stökkva út um glugga á brennandi fjölbýlishúsinu sem er í átjánda hverfi borgarinnar. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús og er ástand þeirra alvarlegt.

Eldurinn braust út um klukkan 4:30 að staðartíma, klukkan hálf þrjú að íslenskum tíma og tóku um 100 slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu. Ekki er vitað um eldsupptök en svo virðist sem eldurinn hafi komið upp á jarðhæð hússins og farið upp um stigagang hússins. Um  hálf átta í morgun hafði slökkviliðið náð stjórn á eldinum en eldsvoðinn er einn sá versti í París í mörg ár.

Innanríkisráðherra Frakklands, Bernard Cazeneuve, kom á vettvang í nótt og sagði við fjölmiðla að enn væri of snemmt að segja til um ástæðu þessa harmleiks.

Samkvæmt frétt Le Parisien stendur fjölbýlishúsið við rue Myrha, skammt frá Château-Rouge neðanjarðarlestarstöðinni.

Saksóknarar hafa tekið við rannsókn á eldsvoðanum sem þykir benda til að um íkveikju hafi verið að ræða. 

Borgarstjóri Parísar, Anne Hidalgo, segir að húsið sé í einkaeigu en ekki borgarinnar en Parísarborg á talsvert af húsnæði á þessum slóðum og leigir þar út íbúðir fyrir borgarbúa með litlar tekjur. 

Byggingin sem brann var númer 4 við rue Murha
Byggingin sem brann var númer 4 við rue Murha Af vef Wikipedia
Rue Myrtha tilheyrir Clignancourt hluta 18. hverfis Parísarborgar
Rue Myrtha tilheyrir Clignancourt hluta 18. hverfis Parísarborgar Google Maps
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar …
Átta létust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í átjánda hverfi Parísar í nótt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert