Bandarískt atvinnuleysi 5,1%

AFP

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 5,1% í ágúst samkvæmt nýjum opinberum tölum þar í landi og hefur það ekki verið lægra síðan snemma á árinu 2008.

Fram kemur í frétt AFP að 173 þúsund ný störf hafi orðið til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði sem væri minna en gert hafi verið ráð fyrir. Þá hafi launahækkanir verið litlar og aukning í atvinnuþátttöku sömuleiðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert