Kynntist manni á netinu og strauk

Emily Wicking.
Emily Wicking.

Breska lögreglan telur mögulegt að fjórtán ára stúlka, sem hefur fór að heiman og hefur verið leitað, sé hjá manni sem hún kynntist á netinu.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að Emily Wicking, sem er frá Eston, sé enn leitað. Hún sást síðast á miðvikudagskvöld.

Lögreglan segir að nú sé reynt að biðla til Emily að snúa aftur heim eða hafa samband við lögreglu, vini eða ættingja, til að láta vita að hún sé örugg og heil heilsu.

Lögreglan biðlar einnig til hótela og annarra gististaða að láta vita ef sést hefur til hennar. 

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert