Sjálfsvíg fyrir framan vinina

AFP

Tyrknesk kona framdi sjálfsvíg á vinsælu kaffihúsi í Istanbul í gærkvöldi. Konan var þar með unnusta sínum, sem er í lífshættu þar sem skotið fór einnig í höfuð hans. Parið var í hópi ungs fólks sem var að skemmta sér.

Þau Zeren Buke Toku og unnusti hennar, Nazif Tugrul Saglam, sátu á útikaffihúsi við helstu verslunargötu borgarinnar, Istiklal Avenue, ásamt hópi ungs fólks. Skyndilega tók Toku byssu upp úr handtösku sinni og skaut sig í höfuðið. Kúlan fór í gegnum höfuð hennar og hafnaði í Saglam sem var við hlið hennar.

Toku lést á sjúkrahúsi í nótt en Saglam er í lífshættu en byssukúlan eyðilagði hluta heila hans. Samkvæmt fréttum tyrkneskra fjölmiðla var fjöldi fólks í götunni þegar atvikið átti sér stað en ekki er vitað á þessari stundu hvers vegna Toku framdi sjálfsvíg en viti segja að parið hafi setið við drykkju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert