Vissu ekki að vélin væri rússnesk

Rússneskur flugmaður við orrustuþotu sína.
Rússneskur flugmaður við orrustuþotu sína. AFP

Tyrkneski herinn segist ekki hafa vitað að orrustuþotan sem þeir skutu niður, og síðar brotlenti innan landamæra Sýrlands, væri rússnesk. Greinir fréttaveita AFP frá þessu og vitnar til yfirlýsingar hersins.

Fram kemur í tilkynningunni að skömmu eftir að orrustuþotan var skotin niður hafi tyrkneski herinn sett sig í samband við hermálayfirvöld í Moskvu og lýst sig reiðubúna til að taka þátt í „alls kyns samvinnu“ vegna atviksins.

Þá segist tyrkneski herinn einnig hafa gert tilraun til þess að finna og bjarga rússnesku flugmönnunum, en annar þeirra týndi lífi í kjölfar árásarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert