Karlmaður handtekinn fyrir hótanir

Frá Nuuk.
Frá Nuuk. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Grænlenska lögreglan handtók í dag karlmann sem grunaður er um að hafa hótað skotárás í menntaskólanum í Nuuk í gær. Lögreglan girti í dag af svæði í kringum heimili mannsins við Kongevej og voru íbúar á svæðinu fluttir á brott.

Lögreglan handtók manninn nokkru síðar en talið var að hann gæti verið vopnaður. Grænlenska ríkisútvarpið segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert