Lík bandaríska fjallgöngumannsins Alex Lowe, sem fórst í snjóflóði í Himalajafjöllum fyrir sextán árum, er fundið. Tveir fjallagarpar sem lögðu á Shishapangma í Tíbet gengu fram á lík hans og félaga hans. Höfðu þau komið undan hopandi jökli.
Lowe var að reyna að komast á tind Shishapangma, sem er rúmlega átta kílómetra hár, árið 1999 þegar hann og myndatökumaðurinn David Bridges lentu í snjóflóði. Þriðji maðurinn, Conrad Anker, lifði hamfarirnar af. Í tilkynningu frá fjölskyldu Lowe kemur fram að fjallgöngumennirnir sem fundu líkin hafi lýst fatnaði og bakpokum sem voru á þeim. Anker hafi ályktað út frá því að þau séu af Lowe og Bridges.
Þremenningarnir ætluðu að komast á tind fjallsins og skíða niður. Þeir voru að kortleggja leiðir í um 5.800 metra hæð þegar stór snjóhengja fór af stað um 1.800 metrum fyrir ofan þá, að því er segir í frétt The Guardian. Shishapangma er 14. hæsti tindur jarðar.
Lowe var talinn einn mesti fjallagarpur heims á sínum tíma og var aðeins fertugur þegar hann fórst. Gárungarnir nefndu hann gjarnan „Lungun með fæturna“ vegna þess hvað hann hafði mikið úthald. Hann hafði meðal annars klifið Everest-fjall tvisvar og er sagður hafa bjargað nokkrum göngumönnum í Alaska árið 1995.
Bridges var 29 ára gamall og var reyndur fjallgöngumaður og kvikmyndagerðarmaður.