Ríki íslams réðist á herstöð

Rússneskir hermenn í borginni Palmyra.
Rússneskir hermenn í borginni Palmyra. AFP

Nýlegar gervihnattamyndir sýna umfangsmiklar skemmdir á herstöð í Sýrlandi sem er notuð af Rússum en talið er að liðsmenn Ríkis íslams hafi ráðist á herstöðina. Bandarískt rannsóknarfyrirtæki greinir frá þessu í dag.

Rússar neita þessu og segja skemmdirnar margra mánaða gamlar og hafi þær orðið til við átök sýrlenskra hermanna og „skæruliða úr hryðjuverkasamtökum“.

Fyrirtækið Stratfor birti myndirnar og eru þær dagsettar 14. og 17. maí. Gefur það til kynna að skemmdirnar hafi verið unnar þá daga. 

Myndirnar gefa til kynna að fjórar þyrlur og 20 trukkar hafi eyðilagst í eldsvoða inni á herstöðinni, sem er í miðju landinu, milli Palmyra og Homs. Telja fulltrúar Stratfor að herstöðin hafi verið skemmd af eldflaugaárás Ríkis íslams.

BBC ræddi við sérfræðinginn Sim Tack, sem sagði það ljóst af myndunum að um nokkuð harða árás hefði verið að ræða.

Rússneska fréttastofan RIA Novosti greindi frá því í dag að eldur hefði geisað á stöðinni á einhverjum tímapunkti en gaf ekki upp hvenær.

Mannréttindasamtökin The Syrian Observatory for Human Rights höfðu sagt frá sprengjuárásum við herstöðina 11. maí eftir að skæruliðar Ríkis íslams náðu tímabundið yfirráðum á hluta vegarins milli Palmyra og Homs. Þá náðu þeir að flytja sprengiefni í næsta nágrenni herstöðvarinnar að sögn Stratfor.

Hægt er að sjá myndirnar í frétt BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert