Línurnar eru farnar að skýrast betur varðandi „Evrópukvóta“ efnisveitnanna Netflix og Amazon en líkt og mbl greindi frá sl. sunnudag vildi framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að 20% af efni veitnanna yrði evrópskt.
Frétt mbl.is: Vilja setja kvóta á evrópskt efni
Í frétt AFP er greint frá því að samhliða tillögum framkvæmdastjórnarinnar hyggist Evrópusambandið auka skilvirkni netverslunar. Áætlunin er síðasti liðurinn í því sem Evrópusambandið kallar „stafrænan heildarmarkað“ sem felur m.a. í sér að komið sé í veg fyrir verðaðgreiningu með því að mismuna neytendum í netverslunum eftir því frá hvaða landi þeir sækja viðkomandi vefverslun.
Frétt mbl.is: 365 íhugar að flytja útgáfu til Bretlands
„Vefverslun í Evrópusambandinu er ekki eins skilvirk og hún getur verið,“ sagði Elzbieta Bienkowska, iðnaðarstjóri Evrópuráðsins, á blaðamannafundi í Brussel.
Evrópuráðið lagði þannig til að netfyrirtæki losi um hömlur á netverslun. Er þar um að ræða breytingar á svokölluðu „geoblocking“-kerfi sem gerir það að verkum að neytendum er beint á síður í heimalandi viðkomandi, t.a.m. þegar þeir sækja vefsíður bílaleiga eða ferðaþjónustufyrirtækja.
Með nýju reglunum verður vefverslunum óheimilt að beina neytendum á tilteknar síður með þeim hætti sem lýst var hér að ofan. „Mismunun á milli neytenda Evrópusambandsins á grundvelli takmarkana á tilteknum mörkuðum eftir landamærum ríkja eiga sér ekki stoð í einum markaði,“ segir Bienkowska.
Nái tillögur framkvæmdastjórnarinnar um „Evrópukvóta“ fram að ganga verða þær áþekkar þeim reglum sem hafa tíðkast um innlendar sjónvarpsstöðvar. Frakkar hafa verið í forystu ríkja sem vilja herða reglurnar til þess að vernda innlendan kvikmynda- og sjónvarpsþáttaiðnað.
Guenther Oettinger, sem fer fyrir stafrænu efni hjá Evrópuráðinu, segir að með reglunum sé verið að tryggja fjölræði fjölmiðla, sjálfstæði fjölmiðlanefnda auk þess sem tryggður sé sanngjarn samkeppnisvettvangur byggður á ábyrgri hegðun, trausti og sanngirni.
Áætlanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þurfa nú að hljóta samþykki aðildarríkjanna og fyrir Evrópuþinginu.