Björguðu um 200 kynlífsþrælum

Wikipedia

Lögreglan í Bogota, höfuðborg Kólumbíu, bjargaði í dag um 200 ungum konum og stúlkum sem var haldið föngnum í kynlífsánauð. Þær voru í haldi á stað ekki langt frá höfuðborginni.

Fram kemur í frétt AFP að lögreglan hafi notið aðstoðar kólumbíska hersins. Ráðist var á staðinn og konurnar og stúlkurnar frelsaðar. Eitt fórnarlambið fannst falið á bak við vegg, hlekkjað á höndum og fótum. Nokkrir einstaklingar voru handteknir á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert