Að minnsta kosti 14 eru látnir eftir árás íslömsku hryðjuverkasamtakanna al-Shabab á Naso-Hablod-hótelið í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. BBC hefur þetta eftir lögreglunni í Mogadishu. Hótelið er vinsælt meðal stjórnmálamanna og ferðamanna.
Að sögn yfirvalda yfirtóku öryggissveitir hótelið eftir að árásarmennirnir, sem beittu skotvopnum, höfðu ráðist til atlögu. Árásin hófst með þeim hætti að einn árásarmannanna sprengdi sig í loft upp í bíl við hlið hótelsins. Í kjölfarið réðust aðrir menn inn á hótelið og skutu á gesti af handahófi. Skotbardagi braust út milli árásarmannanna, sem voru að minnsta kosti fjórir, og öryggissveitanna. Meðal hinna látnu eru öryggisverðir, óbreyttir borgarar og nokkrir af árásarmönnunum.
„Þeir skutu alla sem þeir sáu. Ég náði að flýja út um bakdyr,“ sagði Ali Mohamud, einn hótelgesta, í samtali við fréttaritara AP.
Liðsmenn Al-Shabab voru hraktir frá borginni árið 2011 en hafa þó reglulega gert árásir á ýmis borgarmannvirki síðan þá, í herferð sinni gegn ríkisstjórninni sem er studd af vestrænum ríkjum.
Fyrr í þessum mánuði voru að minnsta kosti tíu menn drepnir og 50 slösuðust þegar liðsmenn al-Shabab gerðu árás á annað hótel í borginni. Sprengjan var ein sú stærsta sem hefur verið sprengd í borginni.