Ótrúlegt björgunarafrek

Samhjálpin er mögnuð hjá þessari litlu fjölskyldu.
Samhjálpin er mögnuð hjá þessari litlu fjölskyldu. Skjáskot af YouTube

Það er óhætt að segja að samhjálpin einkenni fjölskyldu þvottabjarna sem í sameiningu bjargaði þeim yngsta af götu.

Á myndskeiði sem tekið er á Grikklandi má sjá hvernig móðir reynir í örvæntingu að bjarga unga sínum af götu. Litla skinnið hafði orðið viðskila við fjölskylduna og gat ekki sameinast henni á ný þar sem yfir háan vegg var að fara.

Þá voru góð ráð dýr. Móðirin reyndi að ná til litla ungans en þegar það gekk ekki kom bróðir hans til hjálpar sem eins konar framlenging.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert