Ríki íslams lýsir yfir ábyrgð

Fjórir menn halda á slösuðum manni við Holey Artisan Bakery …
Fjórir menn halda á slösuðum manni við Holey Artisan Bakery veitingastaðinn í Dhaka í kvöld. AFP

Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni á kaffihús í miðbæ Dhaka, höfuðborgar Bangladess.

Vígamenn á vegum samtakanna réðust inn á kaffihúsið í kvöld, vopnaðir byssum, og tóku nokkra gísla, að sögn yfirvalda. Kaffihúsið er í Gulshan-hverfinu í miðbæ borgarinnar.

Nokkrir erlendir ferðamenn eru á meðal þeirra sem eru í haldi. Vígamennirnir eru átta eða níu talsins.

Tveir lögregluþjónar féllu og um þrjátíu manns særðust í skotbardaga á milli vígamannanna og lögreglu.

Í yfirlýsingu Ríkis íslams, sem birt var á fréttasíðu samtakanna í kvöld, segir að vígamenn hafi ráðist á veitingastað sem útlendingar haldi sig á. Þar segir jafnframt að yfir tuttugu manns hafi verið drepnir í árásinni, en það hefur hins vegar ekki fengist staðfest, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins.

Liðsmenn öryggissveita segjast nú reyna að semja um lausn gíslanna.

Fregnir herma að allt að tuttugu útlendingar séu á meðal þeirra sem eru í haldi.

„Við viljum leysa þetta friðsamlega. Við erum að reyna að tala við árásarmennina,“ sagði Benazir Ahmed lögreglustjóri.

Forgangsmál sé að bjarga gíslunum.

Lögreglan segir að byssumennirnir hafi ráðist inn á Holey Artisan Bakery klukkan 21:20 að staðartíma og hafið skothríð. 

Kaffihúsið er sagt vinsælt á meðaln

Frétt mbl.is: Gíslataka á kaffihúsi í Bangladess

Lögregluþjónar.
Lögregluþjónar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert