Talsmaður og einn af helstu leiðtogum Ríkis íslams, Abu Muhammad al-Adnani, féll í stríðsátökum, en þetta staðfestir Amaq News Agency, opinber fréttaveita samtakanna, í dag. Adnani var þekktur fyrir áköll sín um að stuðningsmenn samtakanna í Evrópu og Ameríku fremdu hryðjuverk einir síns liðs (e. lone-wolf attacks).
Adnani var einn af stofnendum samtakanna og er talinn hafa verið á bak við margar árásir í Evrópu og víðar. Í yfirlýsingu Amaq kemur ekki fram hvernig Adnani hafi látist, en BBC hefur eftir fulltrúa hjá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna að loftárásum í dag hafi verið beint að háttsettum liðsmönnum samtakanna á al-Bab svæðinu nálægt Aleppo. Tekið er fram hjá Amaq að Adnani hafi látist á sama svæði.
Adnani var fæddur árið 1977 í bænum Banash og var nefndur Taha Sobhi Falaha. Hann var einn af fyrstu erlendu hermönnunum sem komu til Írak árið 2003 til að berjast gegn innrás Bandaríkjanna.