Þrír særðir eftir skotárás í Kristjaníu

Danskir lögregluþjónar að störfum.
Danskir lögregluþjónar að störfum.

Tveir lögreglumenn og einn almennur borgari eru særðir eftir að hafa orðið fyrir skotárás í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í kvöld. Frá þessu greinir Kaupmannahafnarlögreglan á Twitter. Annar lögreglumannanna var skotinn í höfuðið en hinir tveir mennirnir í lærið, að sögn lögreglu.

Lögreglan leitar enn árásarmannsins og beinir því til fólks að forðast svæðið á meðan á aðgerðum stendur. Mikill fjöldi lögreglumanna er nú í Kristjaníu og er Prinsessustræti sagt lokað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert