Sex særðir eftir stunguárás

Tremont Street í Boston.
Tremont Street í Boston. Kort/Google Maps

Sex einstaklingar voru stungnir á Tremont Street í leikhúshverfi Boston í nótt. Einn særðu er í lífshættu, samkvæmt Boston Globe. Lögregla segist hafa borið kennsl á einn grunuðu en Emerson College sendi út viðvörun til nemenda sinna þar sem fram kom að árásarmennirnir hefðu verið tveir.

Lögregla var kölluð til um kl. 2.15 en í hverfinu eru margir staðir sem loka í kringum 2. Útkallið varðaði áflog en þegar komið var á staðinn kom í ljós að margir höfðu verið stungnir. Sumir áverkanna voru veittir með eggvopni, aðrir með flösku.

Emerson College á nokkrar byggingar skammt frá vettvangi og sendi, sem fyrr segir, viðvörun til nemenda þar sem þeir voru beðnir um að vera á varðbergi. Tveir árásarmenn voru sagðir ganga lausir.

Samkvæmt lögreglu virðist þó um einn árásarmann að ræða. Lögregla hefur óskað eftir upplýsingum frá mögulegum vitnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert