Dóttirin fannst á lífi

Ungu mennirnir tveir sem hafa verið handteknir vegna morðanna: Frank …
Ungu mennirnir tveir sem hafa verið handteknir vegna morðanna: Frank Felix og Josh Acosta.

Sautján ára stúlka, sem saknað var af heimili í suðurhluta Kaliforníu þar sem þrír fundust látnir um helgina, hefur fundist á lífi. Tveir hafa verið handteknir vegna morðanna, 21 og 25 ára karlmenn. Þá er einnig sautján ára stúlka í haldi, grunuð um að tengjast morðunum. Lögreglan hefur ekki upplýst hvort að það sé Katlynn Goodwill Yost, sú hin sama og bjó í húsinu og fannst á lífi í kjölfar morðanna.

Í frétt CNN um málið, sem hefur vakið mikinn óhug í Kaliforníu, segir að hin sautján ára heimasæta hafi átt í sambandi við annan mannanna sem eru í haldi.

Á laugardag var lögreglan kölluð út að húsi í Fullerton sem er skammt fyrir utan Los Angeles. Barn hafði hringt í lögregluna og sagt að foreldrar þess væru dánir.

Er lögreglan kom á vettvang fann hún lík tveggja karlmanna og einnar konu í húsinu. Þar fundust einnig tvö börn á lífi. Meðal hinna myrtu eru móðir og stjúpfaðir Katlynn. Lögreglan komst að því að eitt barn, sautján ára stúlku, væri ekki að finna á heimilinu og hóf því leit að henni.

Eins og fyrr segir fannst Katlynn á lífi og í kjölfarið hefur lögreglan upplýst að „sautján ára stúlka“ tengist mögulega morðunum. Lögreglan hefur hins vegar neitað að tjá sig um hvort sú grunaða sé Katlynn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert