Sex voru fluttir á sjúkrahús eftir skotárás fyrir utan verslunarmiðstöð í Houston í Texas í morgun. Fólkið sat m.a. í bílum sínum er byssumaðurinn hóf að skjóta. Lögreglan skaut árásarmanninn til bana.
Frétt mbl.is: Skotárás í verslunarmiðstöð
Lögreglan telur að maðurinn hafi verið einn að verki. Hún hefur ekki gefið frekari upplýsingar um manninn.
Talsmaður slökkviliðsins segir í viðtali við BBC að meiðsl hinna særðu séu af ýmsum toga. Sumir hafi orðið fyrir skotum en aðrir hafi skorið sig á glerbrotum.
Active shooter scene still active but contained. Suspect DOA. Media staging area at Wells Fargo parking lot at 3900 Bissonnett & Weslayan.
— Houston Police (@houstonpolice) September 26, 2016
Í síðustu viku var gerð skotárás í verslunarmiðstöð í Washington-ríki. Fimm létust í árásinni. Árásarmaðurinn, sem var tvítugur, var handtekinn.