17 ára gamli bloggarinn Amos Yee hefur verið dæmdur í sex vikna fangelsi í heimalandi sínu, Singapúr, eftir að hann var fundinn sekur um að hafa sært „trúarlegar tilfinningar.“ Þetta kemur fram á vef BBC.
Yee mun eyða sex vikum bak við lás og slá vegna þess að hann setti viljandi fram gagnrýni á kristnidóm og Íslam í bloggfærslum sínum.
Dómari í málinu sagði að gjörðir Yee gætu skapað óróa í samfélaginu. Yee kom með móður sinni í dómssal. Hún sagði að dómurinn væri sanngjarn og sonur hennar iðraðist gjörða sinna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hinn bloggari er dæmdur fyrir það sem þykja óviðeigandi ummæli á bloggi sínu. Fyrir tveimur árum var hann dæmdur í fjögurra vikna fangelsi fyrir að hæðast að Lee Kuan Yew, fyrrverandi leiðtoga Singapúr og líkja honum við Jesú.
Ýmsir mannréttindahópar telja dóminn grófa aðför að tjáningarfrelsi. Phil Robertson, aðstoðarframkvæmdastjóri Asíudeilar Human Rights Watch, sagði Singapúr þurfa að hugsa þessi mál upp á nýtt.