Hnefaleikakappinn Manny Pacquiao viðurkennir að hann hafi neytt „allskyns eiturlyfja.“ Hann styður þó áætlanir forseta Filippseyja, Rodrigo Duterte, gegn eiturlyfjaneyslu í landinu.
Pacquiao, sem var kjörinn öldungadeildarþingmaður í maí, styður hertar aðgerðir en 3.000 manns hafa fallið í stríðinu gegn fíkniefnum sem Duterte boðaði til í lok júní. Pacquiao segir að forsetinn hafi verið valinn af Guði til að koma aga á í landinu.
„Forsetinn veit ekki af eiturlyfjareynslu minni. Ég hef prófað allar tegundir eiturlyfja,“ sagði Pacquiao og bætti við að það hefði allt gerst áður en hann sneri sér að hnefaleikum.
„Það er ástæða fyrir því að Guð kom honum þar sem hann er; til að koma aga á. Fólk hefur hingað til ekki virt lögin, yfirvöld og leiðtogann. Duterte reynir að láta fólk vita að það verði að virða lög og land.“
Duterte hefur sagt að vandinn sé sá að hann geti ekki drepið alla eiturlyfjaframleiðendur í landinu. „Vandinn er sá [...] að ég get ekki drepið þá alla [...] jafnvel þó að mig langi til þess,“ sagði forsetinn við fréttamenn í heimalandinu fyrir nokkrum dögum.