Heldur fólki í gíslingu í París

Lögreglan á verði skammt frá ferðaskrifstofunni.
Lögreglan á verði skammt frá ferðaskrifstofunni. AFP

Vopnaður ræningi heldur sjö manns í gíslingu á ferðaskrifstofu í París. Lögreglan í París tísti á Twitter að til standi að stöðva manninn og ráðlagði hún ökumönnum að halda sig fjarri svæðinu.

Maðurinn hefur ógnað fólkinu með byssu. 

AFP

Ferðaskrifstofan er við Massena-breiðgötuna sem er í suðurhluta borgarinnar. 

Lögreglan hefur komið sér fyrir skammt frá ferðaskrifstofunni og girt svæðið af. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert