Cazeneuve næsti forsætisráðherra Frakklands

Bernard Cazeneuve verður næsti forsætisráðherra Frakklands.
Bernard Cazeneuve verður næsti forsætisráðherra Frakklands. AFP

Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, verður næsti forsætisráðherra landsins, að því er greint var frá í fréttatilkynningu frá franska forsætisráðuneytinu.

Núverandi forsætisráðherra, Manuel Valls, tilkynnti í gær að hann myndi sækjast eftir útnefningu Sósíalistaflokksins sem frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum í vor.

Frétt mbl.is: Talið að Valls láti af embætti í dag

AFP-fréttastofan hefur áður greint frá því að líklegt sé að Valls láti af embætti í dag.

Cazeneuve mun gegna embætti forsætisráðherra fram að þingkosningunum sem fram fara í landinu í júní á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert