Sveinki svamlar um í fiskabúri

Þeir eru margir viðkomustaðir jólasveinanna fyrir hver jól og ekki eru þeir allir jafn aðgengilegir. Að öllu jöfnu heldur Sveinki sig þó á þurru landi. Svo er þó ekki um þennan jólasvein sem svamlar þessa dagana um inni í fiskabúri í Kuala Lumpur.

Dvöl Sveinka í búrinu er ætlað að hvetja gesti til að heimsækja vatnagarð í borginni. Ekki fylgdi hins vegar sögunni hvaða skoðun aðrir íbúar í fiskabúrinu hefðu á þessum óvenjulega gesti, eða hvort hann gleddi þá með gjöfum í tilefni jólahátíðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert