Sýndu eigið banaslys í beinni

Brooke Hughes (t.v.) ók bílnum og í farþegasætinu var vinkona …
Brooke Hughes (t.v.) ók bílnum og í farþegasætinu var vinkona hennar, Chaniya Morrison-Toomey.

Tvær unglingsstúlkur, sem létust í bílslysi í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, voru að sýna beint frá bílferðinni á Facebook er slysið varð.

Stúlkurnar voru átján og nítján ára. Þær voru á ferð rétt fyrir miðnætti á þriðjudagskvöld. Sú sem ók bílnum tók upp símann og sýndi í beinni útsendingu á Facebook samskipti vinkvennanna. 

„Ertu í beinni?“ má heyra stúlkuna í farþegasætinu spyrja. Vinkonu hennar gafst ekki tími til að svara, hún hafði lent í árekstri. Vöruflutningabíll hafði lent aftan á bíl stúlknanna en þær voru að aka hægt um veginn er slysið varð.

Í frétt Scranton Times-Tribune segir að beinu útsendingunni hafi ekki verið slitið fyrr en nokkrum mínútum seinna. Eldur kviknaði í bíl stúlknanna við áreksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert