Hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders var í dag fundinn sekur um mismunun en var sýknaður af ákæru um hatursorðræðu vegna ummæla sinna um Marokkóbúa árið 2014.
Í dómi sínum sögðu dómararnir að með ummælum sínum hafi hann mismunað fólki frá Marokkó en ekki væru nægar sannanir fyrir því að um hatursorðræðu væri að ræða.
Wilders var ákærður fyrir að að hafa móðgað kynþáttahóp og að hvetja til kynþáttahaturs með ummælum sem hann lét falla um Marokkóbúa í Hollandi á kosningafundi í mars fyrir tveimur árum. Þar spurði Wilders viðstadda hvort þeir vildu fleiri eða færri Marokkóa í Hollandi. Þegar viðstaddur hrópuðu á móti „Færri! Færri!“ svaraði Wilders brosandi „Við ætlum að skipuleggja það“.
Wilders hefur verið þekktur fyrir andúð sína á innflytjendum og múslimum sérstaklega.
Wilders var sýknaður af svipuðum ákærum árið 2011. Ummæli hans sem nú var dæmt fyrir vöktu mikla reiði hjá samfélagi múslima í Hollandi. Þau mættu einnig fordæmingu í hollenska þinginu og útilokuðu aðrir flokkar samstarf við Frelsisflokk hans þrátt fyrir vaxandi vinsældir hans hjá íhaldsfólki í landinu.
Flokkur Wilders, Frelsisflokkurinn, er stærsti stjórnmálaflokkur Hollands um þessar mundir samkvæmt skoðanakönnunum en Hollendingar ganga til þingkosninga í mars.