Reyndist á lífi í líkhúsinu

Maðurinn reyndist enn á lífi en hann hafði verið úrskurðaður …
Maðurinn reyndist enn á lífi en hann hafði verið úrskurðaður látinn deginum áður. AFP

Mótorhjólamaður í Suður-Afríku, sem hafði verið úrskurðaður látinn á vettvangi slyss, reyndist enn á lífi í kæliskáp í líkhúsinu næsta dag. Fjölskylda hans var komin í líkhúsið til að bera kennsl á líkið er uppgötvunin var gerð. Það fór þó þannig að maðurinn lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Maðurinn hafði lent í slysi á mánudagskvöld, var úrskurðaður látinn og fluttur í líkhúsið. 

Morguninn eftir sáu starfsmenn líkhússins hins vegar að hjarta hans sló enn og var hann þá fluttur í flýti á sjúkrahús. Þar var líkami hans hitaður upp en allt kom fyrir ekki, maðurinn lést. 

Hafin er rannsókn á málinu. 

Reuters segir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert