Maðurinn sem skaut 39 til bana á næturklúbbi í Istanbúl á nýársnótt segir að vettvangur árásarinnar hafi verið valinn af handahófi. Þetta kemur fram í tyrkneskum fjölmiðlum.
Fjöldamorðinginn, Abdulgadir Masharipov, segir að samtökin Ríki íslams hafi sagt honum að gera árás á Taksim torgi. Hann hafi hins vegar verið tilneyddur til þess að hætta við það þar sem gríðarleg öryggisgæsla var á svæðinu.
Masharipov, sem er frá Úsbekistan, var handtekinn á á heimili vinar síns í Esenyurt, sem er úthverfi Istanbúl á mánudag. Með honum í íbúðinni var fjögurra ára gamall sonur hans. Fram hefur komið að Masharipov er félagi í þeim armi hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams sem starfar í miðhluta Asíu.
Abdulgadir Masharipov segir að skipanirnar til hans hafi komið frá Raqqa, höfuðvígi Ríkis íslams í Sýrlandi. Þegar í ljós kom að ekki væri hægt að fremja fjöldamorðið á torginu hafi honum verið skipað að leita að nýju skotmarki á svæðinu. Reina virtist henta vel enda lítil öryggisvarsla þar, segir hann.