Ógnuðu eftirlitsmönnum ÖSE

Átökin hafa staðið yfir í þrjú ár og hafa kostað …
Átökin hafa staðið yfir í þrjú ár og hafa kostað tæplega 10.000 manns lífið. AFP

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur fordæmt atvik sem átti sér stað í austurhluta Úkraínu þar sem uppreisnarmenn, sem eru hliðhollir stjórnvöldum í Rússlandi, stöðvuðu almenna eftirlitsmenn á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, og skutu á þá.

Talsmenn ÖSE segja að uppreisnarmennirnir hafi umkringt eftirlitsmennina skammt frá Donetsk, hafið skothríð og tekið af þeim dróna sem þeir ætluðu að láta flúgja yfir nærliggjandi svæði. 

Bandaríska utanríkisráðuneytið hvatti stjórnvöld í Rússlandi og aðskilnaðarsinnana til að framfylgja vopnahléi sem tók gildi fyrir sex dögum. Samkomulag náðist í kjölfar vaxandi ófriðar í landinu í síðasta mánuði. 

Bardagar hafa geisað á milli úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna frá því árið 2014. Tæplega 10.000 manns hafa fallið í átökunum. 

ÖSE er með eftirlitsmenn í landinu til að fylgjast með hvort vopnahléinu sé framfylgt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert